föstudagur, nóvember 28, 2003

Glæruverkefni staðnema 

Mér fannst glæruverkefnin hjá staðnemum mjög flott, sé þetta alveg í framtíðinni hér í fjarmámi í Kennó. Ef ég ætti að nota þetta í kennslu með nemendum mínum myndi ég láta nemendur gera svona t.d. þegar kemur að lokum þemanáms.

Ég skoðaði fyrirlestur um Birkinga (burkna) mjög svo fræðandi fyrir mig sem á langt í land með að vera með grænar hendur. Þetta var skemmtilegur fyrirlestur hjá kennaranemanum.

En er námskeiðinu þá ekki að verða lokið hjá mér?????

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Herjólfur enn á ný 

Jæja þurfti aftur í höfuðborgina um helgina, flaug reyndar upp á land og borgaði fyrir það 10. 000 kr. fyrir mig og dætur mínar tvær. Svo er ég alltaf jafn heppinn lenti í aftakaveðri...

Ég hafði þetta nú samt af....

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Onlý the lonley 

Já þetta tókst hjá mér, allt er nú til. Eins og ég sagði í tal blogginu mínu þá er þetta ekki fyrir mig. En þetta tók mig enga stund að gera ofureinfalt. Í augnablikinu sé ég þetta ekki nýtast í skólastarfi hjá grunnskólanemnum, en jú þetta gæti verið fínt í fjarnámi t.d. við fyrirlestur osfrv.....


Skilaboð sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone
GSMblogg prufa

mánudagur, nóvember 17, 2003

Skil og aftur skil 

Vá hvað skilin hellast yfir mann, ég er dauðfegin að hafa verið búin með þessa vefsíðu á undan áætlun.

Þarf að fara til Reykjavíkur um næstu helgi og ætla að styrkja flugfélagið, það kostar mig BARA 10. 000 kr. að fljúga til RVK aðra leiðina með tvö börn.... Þetta er algjört Rán. En eftir sjóferðina um daginn, tími ég þessu.


fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Vefsíður 

Þvílíkt flott að hafa vefsíðu á leikskóla barna sinna....

mánudagur, nóvember 10, 2003

Herjólfur 

Þurfti nauðsynlega að fara upp á land á laugardaginn og koma heim á sunnudaginn. Ég hef bara ekki verið svona sjóveik síðan ég var barn. Nú bíð ég spennt eftir göngunum...

föstudagur, nóvember 07, 2003

Enn kjaftstopp!!! 

Enn á ný sest ég hér og ætla að koma með eitthvað gáfulegt en er algjörlega tóm, en er þó komin með innlegg eða hvað?

Set kannski eina mynd eða svo



og eina slóð af skemmtilegum myndavef......

mánudagur, nóvember 03, 2003

Hvað næst? 

Hvað ætli við eigum að gera næst?
Nú hellist yfir mig verkefna skil allan nóvembermánuðinn.
Æ ég hef ekki frá neinu að segja eins og er, ætla að fara að gera eitthvað að viti.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?